-
Date012026 April
Við þökkum fyrir góða þátttöku í Bláum mars í Grensáskirkju
Blár mars fór fram í Grensáskirkju í liðnum mánuði. Það var í fyrsta skiptið sem efnt er til dagskrár í Bláum mars í Grensáskirkju. Ungir sem aldnir komu að dagskránni. Stúlknakór Reykjavíkur, Margrét Pálmadóttir, Karlakór Kópavogs, Sigurður Helgi, Matti Ósvald, Róbert Halldórsson, Skólahljómsveit Austurbæjar, Snorri Heimisson, Karlakór KFUM, Þráinn Þorvaldsson, æskulýðsfélagið Poný og leiðtogar, starfsfólk Grensáskirkju og sóknarnefnd. Við þökkum öllum sem tóku þátt í Bláum mars í Grensáskirkju.
Date012026 AprilKrílasálmanámskeið í Grensáskirkju að hefjast
Krílasálmanámskeið hefst í Grensáskirkju mánudaginn 13. apríl nk. kl. 10 og verður einu sinni í viku, alla mánudaga, í sex vikur til og með 18. maí. Námskeiðið er ætlað ungabörnum á aldrinum þriggja mánaða til eins árs. Krílasálmastundirnar eru dásamlegar samverustundir barna og foreldra þeirra þar sem mikið er sungið og leikið. Á námskeiðinu er unnið með skynjun og upplifun, tónlistararfinn og menninguna. Verið hjartanlega velkomin á krílasálmanámskeið í Grensáskirkju.
Date292026 MarchFermingar ganga vel í Fossvogsprestakalli
Fermingar standa yfir í Fossvogsprestakalli. Þær hófust í Bústaðakirkju sunnudaginn 22. mars, þar sem tvær fermingarathöfnir fóru fram þann dag kl. 10:30 og kl. 13:00. Á Pálmasunnudegi var fermt í báðum kirkjum prestakallsins, Grensáskirkju kl. 11 og Bústaðakirkju kl. 13. Myndin hér er tekin af Jónasi Þóri organista við lok fermingarmessu í Bústaðakirkju. Framundan eru páskar. Dagskrá helgihaldsins um páska má finna hér á heimasíðunni, sem og á samfélagsmiðlum og í Morgunblaðinu. Verið hjartanlega velkomin til helgihalds í Bústaðakirkju og Grensáskirkju.
Date062026 MarchBlár mars fer vel af stað í Grensáskirkju
Blár mars í Grensáskirkju hófst með dagskrá á æskulýðsdaginn, sunnudaginn 1. mars sl. Dagskráin í Bláum mars heldur áfram. Nú á sunnudaginn er yfirskrift helgihaldsins Karlar og bænir. Á miðvikudagskvöldið 11. mars kl. 20 verður síðan boðið til dagskrár þar sem Matti Ósvald flytur erindi um karla og krabbamein. Robert Heimir fjallar um reynslu sína að greinast með krabbamein. Karlakór Kópavogs syngur. Verið hjartanlega velkomin til áframhaldandi þátttöku í Bláum mars í Grensáskirkju.
Date062026 MarchBörnin og ungmennin í fyrirrúmi á Æskulýðsdaginn
Æskulýðsdagurinn var haldinn hátíðlegur í Bústaðakirkju og Grensáskirkju. Gríðarleg þátttaka var í kirkjum Fossvogsprestakalls á æskulýðsdaginn. Blár mars hófst í Grensáskirkju þann dag. Við þökkum öllum fyrir þátttökuna og sérstaklega börnum og ungmennum sem settu fagran lit á daginn í báðum kirkjum.
Date252026 FebruaryBlár mars að hefjast í Grensáskirkju
Blár mars er að hefjast í Grensáskirkju. Karlar og krabbamein verður sem sagt á dagskrá þar sem þátttakendur fá tækifæri til að styðja Ljósið og Krabbameinsfélagið. Söngur, fræðsla, vöfflusala, skemmtidagskrá, tónleikar og ýmsir aðrir viðburðir eru á dagskránni. Fjöldi fólks kemur að framkvæmdinni, eins og Skólahljómsveit Austurbæjar, Karlakór KFUM, Karlakór Kópavogs, Æskulýðsfélagið Poný og fleiri. Dagskráin í heild mun birtast hér á heimasíðunni. Verið hjartanlega velkomin til þátttöku í Bláum mars í Grensáskirkju.
Date072026 FebruaryHæfileikamessa unga fólksins
Guðsþjónusta fyrsta sunnudags í níuvikna föstu í Grensáskirkju var helguð leiðtogunum í barna- og æskulýðsstarfi Fossvogsprestakalls er leiddu þjónustuna. Þá fór fram fjölskyldumessa með gjörningi, þar sem umfjöllunarefni dagsins var hæfileikar. Ásta Haraldsdóttir kantor leiddi tónlistina og stjórnaði Kór Grensáskirkju. Séra Laufey Brá Jónsdóttir og Sólveig Franklínsdóttir æskulýðsfulltrúi voru unga fólkinu til aðstoðar. Þær sögðu frá guðspjalli dagsins og fengu nokkur fermingarbörn til þess að leika með í frásögunni. Þetta var létt og skemmtileg messa þar sem unga fólkið fékk að láta ljós sitt skína. Þá flutt þau Gréta Petrína Zimsen og Gabríel Bjarmi Jónsson líflega samtalshugvekju með leik og þátttöku fólks er fjallaði um hæfileika okkar og hvernig við förum með gjafirnar sem Guð hefur gefið okkur.
Date272026 JanuaryStóri kótilettudagurinn í Bústaðakirkju
Stóri kótilettudagurinn verður haldinn í Bústaðakirkju miðvikudaginn 4. febrúar nk. kl. 12:00. Húsið opnar kl. 12:00 og hefst maturinn kl. 12:30. Kótilettur með gamla laginu og meðlæti. Kaffi og konfekt í eftirrétt. Verð kr. 3.500.- á mann. Ketill Ágústsson spilar á gítar og syngur. Skráning í Bústaðakirkju í síma 553-8500 eða með tölvupósti á holmfridur@kirkja.is. Bókið sem fyrst þar sem fjöldi gesta er takmarkaður. Verið hjartanlega velkomin á stóra kótilettudaginn í Bústaðakirkju.
Date262026 JanuaryFjölmenn Eyjamessa í Bústaðakirkju
Guðsþjónusta síðasta sunnudags eftir þrettándann í Bústaðakirkju var helguð Vestmannaeyjum. Þá fór fram svokölluð Eyjamessa, þar sem Átthagafélag Vestmannaeyinga í Reykjavík (ÁtVR) tók þátt í undirbúningi og framkvæmd. Að lokinni messu bauð ÁtVR til kaffisamsætis í safnaðarheimilinu. Við þökkum öllum þátttökuna í Bústaðkirkju á síðasta sunnudegi eftir þrettándann.
Date162026 JanuaryAlfa námskeið í Bústaðakirkju, komdu og vertu með
Alfa námskeið verður haldið í Bústaðakirkju á fimmtudögum frá 29. janúar nk. kl. 18:30. Á Alfa er á einfaldan og þægilegan máta fjallað um grundvallaratriði kristinnar trúar og boðskap Biblíunnar. Umgjörð Alfa er afslöppuð og þægileg. Ekki eru gerðar kröfur um trúarafstöðu né heimalærdóm eða aðrar skuldbindingar gerðar til þátttakenda. Öllum er frjálst að hafa sínar skoðanir og spyrja spurninga. Vertu hjartanlega velkomin á Alfa námskeið í Bústaðakirkju. Tekið er á móti skráningum í síma 553-8500 og í gegnum tölvupóst.
Date012026 JanuaryÞökkum fyrir alla þátttöku í þjónustu kirknanna um hátíðarnar
Þátttaka í helgihaldi og allri dagskrá Bústaðakirkju og Grensáskirkju á aðventu, jólum og um áramótin var að jafnaði góð. Á aðfangadagskvöld voru kirkjurnar báðar fullar. Jólaball Fossvogsprestakalls var haldið í Bústaðakirkju sunnudaginn 28. desember kl. 15. Metfjöldi sótti jólaballið. Við þökkum ykkur öllum fyrir þátttökuna í helgihaldi kirknanna í Fossvogsprestakalli og allri dagskrá á helgum hátíðum. Gleðilegt ár, með þökkum fyrir hið liðna.
Pagination
- 1
- 2
- 3
- 4
- 5
- 6
- 7
- 8
- 9
- …
- Næsta síða
- Síðasta síða
Fréttir