Vox Gospel og Sigurður Ingimarsson
Gospelmessa fór fram í Grensáskirkju sunnudagskvöldið 8. nóvember sl. kl. 20:00.
Gospelkórinn Vox Gospel söng undir stjórn Sigurðar Ingimarssonar. Einsöngvarar úr kórnum sungu einsöng. Prestur var séra Þorvaldur Víðisson. Kórkonur úr Vox Gospel lásu ritningarlestra Kristniboðsdagsins.
Kraftmikil gospeltónlist var á dagskránni, Oh Happy Day, Wade in the Water og fleiri. Einnig dásamlega falleg og kraftmikil gospellög á íslensku, tvö þeirra þýðingar Guðrúnar Erlingsdóttur, Kirkja í krafti og Ég er í höndum þér. En Guðrún hefur samið fjölda fallegra laga og texta og einnig þýtt fjölda texta úr ensku.
Kórinn Vox Gospel heldur sínar æfingar í Grensáskirkju á miðvikudögum. Mikil ánægja er með samstarfið og tilhlökkun til framtíðar að halda reglulega gospelmessur í Grensáskirkju.
Við þökkum öllum fyrir þátttökuna og dásamlega kvöldstund í Grensáskirkju.
Verið hjartanlega velkomin til þátttöku í kirkjustarfinu.
Kristniboðsdagurinn
Kórmeðlimir Vox Gospel lásu ritningarlestra Kristniboðsdagsins og lagði séra Þorvaldur út frá þeim textum í hugvekju kvöldsins.