Ritningarvers fyrir ferminguna

  1. Allt megna ég fyrir hjálp hans sem mig styrkan gerir. Fil. 4.13
  2. Allt sem þér viljið að aðrir menn geri yður, það skuluð þér og þeim gera. Því að þetta er lögmálið og spámennirnir. Mt. 7.12 
  3. Á nafn hans munu þjóðirnar vona. Mt. 12.21 
  4. Ákalla mig á degi neyðarinnar, og ég mun frelsa þig, og þú skalt vegsama mig. Sálm.50:15 
  5. Berið hvert annars byrðar og uppfyllið þannig lögmál Krists. Gal. 6.2 
  6. Biðjið, og yður mun gefast, leitið og þér munuð finna, knýið á og fyrir yður mun upp lokið verða.     Mt. 7.7 
  7. Drottin er öllum góður, og miskunn hans er yfir öllum, sem hann skapar Sálm. 145:9 
  8. Drottinn er andinn og þar sem andi Drottins er, þar er frelsi. 2.Kor. 3.17. 
  9. Drottinn er góður, miskunn hans varir að eilífu og trúfesti hans frá kyni til kyns.Sálm. 100:5 
  10. Drottinn er hlutskipti mitt, ég hef ákveðið að halda boð þín. Sl. 119.57
  11. Drottinn er ljós mitt og fulltingi, hvern ætti ég að óttast? Drottinn er vígi lífs míns, hvern ætti ég að hræðast? Sálm. 27:1
  12. Drottinn er minn hirðir, mig mun ekkert bresta. Sálm. 23:1
  13. Drottinn er réttlátur á öllum vegum sínum og miskunnsamur í öllum verkum sínum. Sl. 145.17
  14. Drottinn er trúfastur í öllum orðum sínum og miskunnsamur í öllum verkum sínum. Sálm. 145:13b 
  15. Drottinn er vörður þinn, Drottinn skýlir þér, hann er þér til hægri handar. Sl. 121.5
  16. Drottinn mun vernda þig fyrir öllu illu, hann mun vernda sál þína. Sl. 121.7 
  17. Drottinn styður alla þá sem ætla að hníga og reisir upp alla niðurbeygða. Sl. 145.14
  18. Drottinn, vertu góðum góður og þeim sem hjartahreinir eru. Sl. 125.4
  19. Drottinn, þú ert minn Guð! Ég vil vegsama þig, lofa nafn þitt! Þú hefir framkvæmt furðuverk, löngu ráðin ráð, trúfesti og sannleika. Jes. 25:1 
  20. Ef Drottinn byggir ekki húsið, erfiða smiðirnir til ónýtis. Sálm. 107:1
  21. Ef vér játum syndir vorar, þá er hann trúr og réttlátur, svo að hann fyrirgefur oss syndirnar og hreinsar oss af öllu ranglæti. 1.Jóh. 1:9
  22. Ef þér elskið mig, munuð þér halda boðorð mín.    Jóh. 14:15         
  23. Elskan sé flærðarlaus. Hafið andstyggð á hinu vonda en haldið fast við hið góða. Róm. 12.9 
  24. En ég segi yður er á mig hlýðið: Elskið óvini yðar, gjörið þeim gott sem hata yður. Lk. 6.27 
  25. En Jesús sagði: Leyfið börnunum að koma til mín, varnið þeim eigi því að slíkra er himnaríki.
  26. En nú varir trú, von og kærleikur, þetta þrennt, en þeirra er kærleikurinn mestur. 1.Kor. 13.13
  27. En þeir sögðu: "Trú þú á Drottin Jesú, og þú munt verða hólpinn og heimili þitt."    Post. 16:31
  28. En þú, Drottinn, ert skjöldur minn, sæmd mín og lætur mig bera höfuðið hátt. Sl. 3.4 
  29. Engill Drottins setur vörð kringum þá er óttast hann, og frelsar þá. Sálm. 34:8
  30. Ég er góði hirðirinn. Góði hirðirinn leggur líf sitt í sölurnar fyrir sauðina. Jh. 10.11
  31. Ég hef Drottin ætíð fyrir augum, þegar hann er mér til hægri handar, skriðnar mér ekki fótur. Sálm. 16:8
  32. Ég leita þín af öllu hjarta, lát mig eigi villast frá boðum þínum. Sl. 119.10 
  33. Ég lifi og þér munuð lifa. Jh. 14.19
  34. Ég vil lofa Drottinn meðan lifi, lofsyngja Guði mínum, meðan ég er til. Sálm. 146:2
  35. Ég vil vegsama Drottin alla tíma, ætíð sé lof hans mér í munni. Sálm. 34:2
  36. Ég vil þakka þér, Drottinn, af öllu hjarta, kunngjöra öll máttarverk þín. Sl. 9.2
  37. Fagnið með fagnendum, grátið með grátendum. Róm. 12.15.
  38. Fel Drottni vegu þína og treyst honum, hann mun vel fyrir sjá. Sálm. 37:5
  39. Gjaldið engum illt fyrir illt. Róm. 12.17
  40. Gott mannorð er betra en mikill auður, vinsæld er betri en silfur og gull. Orðskv. 22:1 
  41. Guð er oss hæli og styrkur, örugg hjálp í nauðum. Sálm. 46:2    
  42. Guð er oss hæli og styrkur, örugg hjálp í nauðum. Sálm. 46:2
  43. Guð fyrirgefur allar misgjörðir þínar, læknar öll þín mein. Sálm. 103:3
  44. Guð vonarinnar fylli yður öllum fögnuði og friði í trúnni svo að þér séuð auðug að voninni í krafti heilags anda. Róm 15.13 
  45. Guði er enginn hlutur um megn. Lk. 1.37
  46. Hann fyrirgefur allar misgjörðir þínar, læknar öll þín mein. Sl 103.3
  47. Hann mælti: Það sem mönnum er um megn, það megnar Guð. Lk. 18.27
  48. Hann veitir kraft hinum þreytta og gnógan styrk hinum þróttlausa. Jesaja 40:29    
  49. Hjarta yðar skelfist ekki. Trúið á Guð og trúið á mig. Jóh. 14:1
  50. Hjálp mín kemur frá Drottni, skapara himins og jarðar. Sálm. 121:2
  51. Hjálp mín kemur frá Drottni, skapara himins og jarðar. Sálm. 121:2
  52. Hvað stoðar það manninn að eignast allan heiminn, en týna eða glata sjálfum sér? Lk. 9.25
  53. Hver sem tekur við einu slíku barni í mínu nafni tekur við mér, og hver sem tekur við mér tekur ekki aðeins við mér heldur og við þeim er sendi mig. Mk. 9.37
  54. Hver sem upp hefur sjálfan sig mun auðmýktur verða, en sá sem lítillækkar sjálfan sig mun upp hafinn verða. Mt. 23.12
  55. Í friði leggst ég til hvíldar og sofna því að þú einn, Drottinn, lætur mig hvíla óhultan í náðum. Sl. 4.9
  56. Í upphafi skapaði Guð himin og jörð. 1. Mós. 1.1.
  57. Í upphafi var Orðið og Orðið var hjá Guði og Orðið var Guð. Jóh. 1:1
  58. Í þínar hendur fel ég anda minn, þú frelsar mig, Drottinn, þú trúfasti Guð! Sálm 31:6
  59. Jafnskjótt hrópaði faðir sveinsins: Ég trúi, hjálpa þú vantrú minni. Mk. 9.24
  60. Jafnvel þótt ég fari um dimman dal, óttast ég ekkert illt, því að þú ert hjá mér, sproti þinn og stafur hugga mig. Sálm. 23:4
  61. Jesús Kristur er í gær og í dag hinn sami og um aldir. Heb. 13:8
  62. Jesús mælti: „Ég er upprisan og lífið. Sá sem trúir á mig, mun lifa, þótt hann deyi.” Jóh. 11:25    
  63. Jesús sagði: „Ég er ljós heimsins. Sá sem fylgir mér, mun ekki ganga í myrkri, heldur hafa ljós lífsins. Jóh 8:12
  64. Jesús sagði: „Komið til mín, allir þér sem erfiði hafið og þungar byrðar, og ég mun veita yður hvíld.” Matt. 11:28
  65. Jesús segir við hann: „Ég er vegurinn, sannleikurinn og lífið. Enginn kemur til föðurins, nema fyrir mig.” Jóh. 14:6
  66. Kenn mér að gera vilja þinn, því að þú ert Guð minn, þinn góði andi leiði mig um slétta braut.         Sl. 143.10
  67. Komið til mín, allir þér sem erfiði hafið og þungar byrðar, og ég mun neita yður hvíld. Matt. 11:28
  68. Kærleikurinn breiðir yfir allt, trúir öllu , vonar allt, umber allt. Kærleikurinn fellur aldrei úr gildi. I. Kor 13:7
  69. Lát engan líta smáum augum á æsku þína, en ver fyrirmynd trúaðra, í orði, í hegðun, í kærleika, í trú, í hreinleika. I. Tim. 4:12
  70. Leitið Drottins, meðan hann er að finna, kallið á hann meðan hann er nálægur! Jesaja 55:6
  71. Líkist þeim ekki. Faðir yðar veit hvers þér þurfið áður en þér biðjið hann. Mt. 6.8
  72. Lítið ekki á eigin hag, heldur einnig annarra. Verið með sama hugafari sem Jesús Kristur var. Fil. 2:4-5
  73. Ljúflyndi ykkar verði kunnugt öllum mönnum. Drottinn er í nánd. Fil. 4.5
  74. Lofa þú Drottin, sála mín, og gleym eigi neinum velgjörðum hans. Sálm 103:2
  75. Lofaður sé Drottinn, Guð Ísraels, því að hann hefur vitjað lýðs síns og búið honum lausn. Lk. 1.68
  76. Með hverju getur ungur maður haldið vegi sínum hreinum? Með því að gefa gaum að orði þínu.       Sl. 119.9
  77. Með því að trúa á Krist Jesú eruð þið öll Guðs börn. Gal. 3.26
  78. Náð mín nægir þér, þó að mátturinn fullkomnast í veikleika. II. Kor. 12:9
  79. Náðugur og miskunnsamur er Drottinn, þolinmóður og mjög gæskuríkur. Sálm. 145:8
  80. Nú talaði Jesús aftur til þeirra og sagði: Ég er ljós heimsins. Sá sem fylgir mér mun ekki ganga í myrkri heldur hafa ljós lífsins. Jh. 8.12
  81. Og hann sagði við alla: „Hver sem vill fylgja mér, afneiti sjálfum sér, taki kross sinn daglega og fylgi mér.” Lúk. 9:23            
  82. Og Jesús kom til þeirra, talaði við þá og sagði: Allt vald er mér gefið á himni og jörðu. Mt. 28.18
  83. Og Jesús sagði við alla: Hver sem vill fylgja mér afneiti sjálfum sér, taki kross sinn daglega og fylgi mér. Lk. 9.23
  84. Orð krossins er heimska þeim er glatast, en oss, sem hólpnir verðum, er það kraftur Guðs. I. Kor 13:7
  85. Orð þitt, Drottinn, varir að eilífu, það stendur stöðugt á himnum. Sl. 119.89
  86. Óttast þú eigi, því að ég er með þér. Lát eigi hugfallast, því að ég er þinn Guð. Ég styrki þig, ég hjálpa þér, ég styð þig með hægri hendi réttlætis míns. Jes. 41:10
  87. Sá mesti meðal yðar sé þjónn yðar. Mt. 23.11
  88. Sá sem ástundar réttlæti og kærleika, hann öðlast líf, réttlæti og heiður. Orðskv. 21:21
  89. Sá sem ekki elskar þekkir ekki Guð því að Guð er kærleikur. 1.Jóh. 4.8
  90. Sá sem þykist vera nokkuð en er þó ekkert blekkir sjálfan sig. Gal. 6.3
  91. Símon Pétur svarar: Þú ert Kristur, sonur hins lifanda Guðs. Mt. 16.16
  92. Sjá þjón minn sem ég hef útvalið, minn elskaða sem ég hef velþóknun á. Ég mun láta anda minn koma yfir hann og hann mun boða þjóðunum rétt. Mt. 12.18
  93. Skapa í mér hreint hjarta, ó Guð, og veit mér nýjan, stöðugan anda. Sálm. 51:12
  94. Svo elskaði Guð heiminn, að hann gaf son sinn eingetinn til þess að hver sem á hann trúir glatist ekki, heldur hafi eilíft líf. Jóh 3:16
  95. Sælir eru fátækir í anda því að þeirra er himnaríki. Mt. 5.3
  96. Sælir eru friðflytjendur, því að þeir munu Guðs börn kallaðir verða.    Matt. 5:9
  97. Sælir eru hjartahreinir, því að þeir munu Guð sjá. Matt. 5:8
  98. Sælir eru hógværir, því að þeir munu jörðina erfa. Matt. 5:5
  99. Sælir eru miskunnsamir, því að þeim mun miskunnað verða. Matt. 5:7
  100. Sælir eru þeir sem hungrar og þyrstir eftir réttlætinu því að þau munu södd verða. Mt 5.6
  101. Sælir eru þeir, sem hungrar og þyrstir eftir réttlætinu, því að þeir munu saddir verða. Matt 5:6                               
  102. Sælla er að gefa, en þiggja. Post. 20.35
  103. Trúið á ljósið meðan þér hafið ljósið svo að þér verðið börn ljóssins. Jh. 12.36
  104. Vakið því, þér vitið eigi hvaða dag Drottinn yðar kemur. Mt. 24.42
  105. Varðveit mig sem sjáaldur augans, fel mig í skugga vængja þinna. Sálm. 17:8
  106. Varðveit mig sem sjáaldur augans, fel mig í skugga vængja þinna. Sálm. 17:8
  107. Varðveit mig, Guð, því að hjá þér leita ég hælis. Sálm. 16:1
  108. Vegur Guðs er lýtalaus, orð Drottins er hreint, skjöldur er hann öllum þeim sem leita hælis hjá honum. Sl. 18.31.
  109. Verið ávallt glöð í Drottni. Ég segi aftur: Verið glöð. Fil. 4.4.
  110. Verið ekki hálfvolg í áhuganum, verið brennandi í andanum. Þjónið Drottni. Róm. 12.11
  111. Verið glöð í voninni, þolinmóð í þjáningunni, staðföst í bæninni. Róm. 12.12
  112. Verið með sama hugarfari sem Kristur Jesús var. Fil. 2.5
  113. Verið miskunnsöm eins og faðir yðar er miskunnsamur. Lk. 6.36
  114. Við vitum að þeim sem Guð elska samverkar allt til góðs, þeim sem hann hefur kallað samkvæmt ákvörðun sinni. Róm. 8.28
  115. Vísa mér veg þinn, Drottinn, lát mig ganga í sannleika þínum, gef mér heilt hjarta, að ég tigni nafn þitt.  Sálm.86:11
  116. Vísa mér vegu þína, Drottinn, kenn mér stigu þína. Sl. 25.4
  117. Þeir sem þekkja nafn þitt treysta þér því að þú, Drottinn, bregst ekki þeim sem til þín leita. Sl. 9.11
  118. Þetta er mitt boðorð, að þér elskið hvert annað eins og ég hef elskað yður. Jh. 15.12
  119. Þér eruð vinir mínir, ef þér gjörið það, sem ég býð yður. Jóh. 15:14
  120. Þið hafið tekið á móti Kristi, Drottni Jesú. Lifið því í honum. Kól. 2.6
  121. Þitt orð er lampi fóta minna og ljós á vegi mínum. Sálm. 119:105
  122. Þreytumst ekki að gera það sem gott er því að á sínum tíma munum við uppskera ef við gefumst ekki upp. Gal. 6.9
  123. Þú ert kraftur minn, þér fel ég mig því að Guð er vígi mitt. Sl. 59.10
  124. Því að Drottinn er góður, miskunn hans varir að eilífu og trúfesti hans frá kyni til kyns. Sl. 100.5
  125. Því að ég þekki sjálfur þær fyrirætlanir sem ég hefi í hyggju með yður, segir Drottinn, fyrirætlanir til heilla en ekki til óhamingju, að veita yður vonarríka framtíð. Jer. 29.11
  126. Því að ég, Drottinn, Guð þinn, held í hægri hönd þína og segi við þig: "Óttast þú eigi, ég hjálpa þér!"  Jesaja 41:13
  127. Því að þín vegna býður hann út englum sínum til þess að gæta þín á öllum vegum þínum. Sálm. 91:11            
  128. Því hvar sem fjársjóður yðar er, þar mun og hjarta yðar vera. Lk. 12.34
  129. Því svo elskaði Guð heiminn að hann gaf einkason sinn til þess að hver sem á hann trúir glatist ekki heldur hafi eilíft líf. Jóh. 3:16