Foreldramorgnar

Samvera á fimmtudögum kl. 10 -12 yfir vetrartímann
 

Umsjón með foreldramorgnum hefur Ragnheiður Bjarnadóttir, tónlistarkona. Foreldramorgnar eru samverustundir fyrir foreldra og börn þeirra og henta einkum þeim sem eru í fæðingarorlofi eða eru heimavinnandi. Markmiðið með foreldramorgnum er að efla félagsleg tengsl foreldra og barna þeirra í Bústaðarsókn. Stærra félagsnet kemur þér alltaf til góða og er styrkur inn í framtíðina fyrir þig og barn þitt. Í samverunni er gjarna söngstund með börnunum þar sem Ragnheiður spilar í flygil og foreldrar og börn taka þátt. Boðið er upp á hressingu í vinalegu og eflandi umhverfi kirkjunnar.
 

Hvar er hist?

Við hittumst vikulega í Bústaðarkirkju við Tunguveg, í safnaðarheimili kirkjunnar. Þú mætir einfaldlega á bilinu 10:00-12:00 þegar þér hentar, ekki þarf að skrá né tilkynna komu fyrirfram. Allir eru hjartanlega velkomnir, láttu sjá þig!