26
2026 maí

Sumarnámskeið í Grensáskirkju

Grensáskirkja býður upp á fjögur sumarnámskeið í júní og júlí 2026 fyrir börn á aldrinum 6-10 ára. 

Dagskrá námskeiðsins er fjölbreytt, bæði inni og úti. Við munum skemmta okkar í kirkjunni sem og í nærumhverfinu okkar. Mikilvægt er að koma með hlý og góð föt fyrir útiveru. Leitast er við að allir fái notið sín í öruggu og nærandi umhverfi.

  • Leikir
  • Föndur
  • Vettvangsferð
  • Biblíusögur
  • Lego
  • Grill

Tími

Hvert námskeið er frá kl. 9:00 - 15:30.

Húsið opnar kl. 8:45 og lokar kl. 15:45. 

Hvar?

Í Grensáskirkju, safnaðarheimilinu og kirkjunni. Gengið inn um aðaldyr kirkjunnar.

Hvenær?

Vika 1: 15. – 19. júní (frí 17. júní).

Vika 2: 22. – 26. júní.

Vika 3: 29. júní – 3. júlí.

Vika 4: 6. – 10. júlí.

 

Verð námskeiða:

Vika 1: Kr. 15.000, ef barn og foreldri eru skráð í þjóðkirkjuna.
Verð fyrir þátttakendur utan þjóðkirkjunnar á námskeið í viku 1 er kr. 18.000.

Vikur 2, 3 og 4: Kr. 17.000, pr. vika,  ef barn og foreldri eru skráð í þjóðkirkjuna.
Verð fyrir þátttakendur utan þjóðkirkjunnar á námskeið í vikum 2, 3 og 4 er kr. 20.000.

Börnin koma með sitt eigið nesti, en kirkjan býður upp á ávexti. Miðað er við þrjár nestisstundir yfir daginn. Á föstudögum verður boðið upp á grillpartý og glaðning í kaffitímanum. 

Umsjón með starfinu hefur Sólveig Franklínsdóttir, æskulýðsfulltrúi. Hægt er að senda fyrirspurnir á netfangið: solveig@kirkja.is eða hringja í gsm: 8628883.

Skráning í þjóðkirkjuna er hér.

Foreldrar skrá börn sín til þátttöku á námskeiðin með því að fylla út skráningarupplýsingar hér á heimasíðunni.

Skráningarformið er hér

 

Hjartanlega velkomin(n)

Staðsetning / Sókn