Æskulýðsstarf

Æskulýðsstarf

Æskulýðsfélagið Pony er æskulýðsfélag fyrir unglinga í 8.-10. bekk. Æskulýðsfundirnir fara fram í safnaðarheimili Grensáskirkju, gengið inn um aðalinnganginn, á þriðjudögum klukkan 20.00-21.30. Félagið er samstarfsverkefni Bústaðakirkju og Grensáskirkju. Þátttaka er ókeypis.

Æskulýðsfélagið er vettvangur unglinga til að leika, læra og efla bænalíf sitt í góðu og heilbrigðu umhverfi. Áhersla er á að hafa dagskrána fjölbreytta og skemmtilega. Félagið tekur virkan þátt í viðburðum og mótum ÆSKH og ÆSKÞ.

Umsjón með æskulýðsstarfinu hafa Sólveig Franklínsdóttir, æskulýðsfulltrúi, Iðunn Helga Zimsen, æskulýðsleiðtogi og Gabríel Bjarmi Jónsson, ungleiðtogi. Upplýsingar um starfið veitir Sólveig á solveig@kirkja.is.

Hægt er að finna alla helstu barna- og æskulýðssöngva á síðunni lofgjord.com.

Æskulýðssamband Þjóðkirkjunnar ÆSKÞ