Tíu-til-tólf ára starf, TTT

TTT - Tíu-til-tólf ára starf

Tíu til tólf ára starf í Grensáskirkju

Tíu til tólf ára starfið eða TTT í Grensáskirkju er eins og nafnið gefur til kynna starf fyrir börn á aldrinum 10-12 ára eða í 5.-7. bekk. Foreldrar skrá börn sín til þátttöku með því að fylla út skráningarformið á kirkja.is, eða með því að senda upplýsingarnar á netfangið solveig@kirkja.is. Það er ókeypis að taka þátt. Börnin mæta sjálf í starfið í safnaðarheimili Grensáskirkju en gengið er inn um aðaldyr kirkjunnar.

Hér er hægt að skrá sig í starfið hér

Biblíusögur með leik og LEGO

Yfirskriftin að þessu sinni er Biblíusögur með leik og LEGOVið munum lesa nokkrar Biblíusögur og tengja boðskap þeirra við nútímann. Við munum bæði leika þær með léttum leikmunum og gera stuttmynd og líka byggja þær með LEGO kubbum.

Hvenær?

Á þriðjudögum kl. 16:15-17:25 og einn sunnudag kl. 11:00. 


Dagsetningar


Þriðjudaginn  18. febrúar
Þriðjudaginn  25. febrúar
Þriðjudaginn 4. mars
Þriðjudaginn 11. mars
Þriðjudaginn 18. mars
Þriðjudaginn  25. Mars


Sunnudaginn 30. mars kl. 11.00 – 12.30.

 

Uppskeruhátið í fjölskyldumessu kl.11:00 í Grensáskirkju og sýning á verkum barnanna.

 

Hjartanlega velkomin(n)

 

Verið hjartanlega velkomin í TTT, tíu-til-tólf ára starf í Grensáskirkju.