19
2026 November

Miklar endurbætur að baki

Safnaðarheimili Grensáskirkju hefur nú verið endurbætt og lagfært. Aðstaðan er til fyrirmyndar og eru nú haldnar brúðkaupsveislur, skírnarveislur, afmæli og erfidrykkjur við hinar bestu aðstæður. 

Eldhúsið var endurnýjað frá grunni. Lagnir lagfærðar, innréttingar og tæki endurnýjaðar og borðbúnaðurinn er nýr. 

Það sama er að segja um húsgögnin í salnum sjálfum en þar eru borð og stólar nýir. 

Salernisaðstaðan var einnig endurnýjuð að fullu, með nýjum tækjum og innréttingum. Þar fengu gömlu flísarnar að halda sér, þar sem þær voru heilar og fínar og vísa þær á þann máta til gamla tímans. Eins er með salinn sjálfann að hann heldur sínum gamla sjarma, þótt innréttingar og tæki og aðbúnaður hafi verið endurnýjaður að fullu. Parketið var slípað og lagfært. 

Sjón og sögu ríkari. 

Verið hjartanlega velkomin að skoða aðstöðuna hjá okkur í Grensáskirkju. 

Hér fyrir neðan eru fleiri myndir. 

Myndir af safnaðarheimili Grensáskirkju, stærri salnum

Myndir af stærri salnum. 

Svo er minni salurinn einnig til reiðu. Hann var mikið endurnýjaður fyrir nokkrum árum. 

Fleiri myndir

Fleiri myndir

Enn fleiri myndir

Enn fleiri myndir