Mikilvæg verkefni Hjálparstarfs kirkjunnar
Árleg söfnun fermingarbarna fyrir Hjálparstarf kirkjunnar fór fram í Fossvogsprestakalli í gær, miðvikudaginn 4. nóvember. Fermingarbörnin gengu hús úr húsi, tvö eða fleiri saman í hópum, með bauka frá Hjálparstarfi kirkjunnar, og buðu fólki að styðja við starf Hjálparstarfsins með fjárframlagi.
Fermingarbörn á öllu landinu taka þátt í söfnuninni þessa vikuna en innkoman verður nýtt í vatnsverkefni Hjálparstarfs kirkjunnar í Eþíópíu.
Góð þátttaka var hjá fermingarbörnum í Bústaðakirkju og Grensáskirkju, sem stóðu sig prýðilega á söfnunardeginum.
Að lokinni söfnun buðu sóknarnefndir kirknanna börnunum upp á pizzur í safnaðarheimilunum.
Við þökkum fermingarbörnunum þátttökuna og einnig öllum sem lögðu Hjálparstarfi kirkjunnar lið og tóku vel á móti fermingarbörnunum.