08
2026
November
Krakkasálmar fyrir krakkana á sunnudögum
Krakkasálmar fyrir krakkana á sunnudögum
Krakkasálmarnir í Grensáskirkju fara mjög vel af stað. Góð mæting var í krakkasálmana í dag, sunnudaginn 8. nóvember.
Dagskrá Krakkasálmanna hefst í messunni kl. 11 og síðan ganga börnin saman með leiðtogum sínum, Iðunni og Grétu, yfir í safnaðarheimilið þar sem barnadagskráin fer fram.
Í Krakkasálmunum ganga börnin inn í Biblíusöguna. Þau verða þátttakendur í frásögunni með búningum og skemmtilegheitum. Einnig eru barnasálmarnir sungnir og bænirnar á sínum stað.
Léttar veitingar eru síðan í boði fyrir börn og fullorðna að krakkasálmum loknum og að lokinni messu.
Verið hjartanlega velkomin til þátttöku í barnastarfinu og helgihaldinu á sunnudögum í Grensáskirkju.