29
2026
October
Séra Benedikt Sigurðsson prestur í Garðabæ
Séra Benedikt Sigurðsson prestur í Garðabæ
Séra Benedikt Sigurðsson prestur í Garðabæ var gestur dagsins í eldri borgarastarfinu í Bústaðakirkju í gær. Benni Sig, eins og hann er gjarnan kallaður lék á harmonikku og leiddi söng, á sinn einstaka og hlýlega máta. Sungnir voru sálmar og falleg dægurlög, boðskapurinn vonarríkur og kærleiksríkur.
Séra Sólveig Franklínsdóttir leiddi dagskrána í eldri borgarastarfinu í fjarveru Hólmfríðar Ólafsdóttur djákna.
Við þökkum Benna Sig innilega fyrir komuna í eldri borgarastarfið í Bústaðakirkju.