19
2026 November

Tónlistin og sagan

Bogi Ágústsson var gestur dagsins í eldri borgarastarfinu í Bústaðakirkju, miðvikudaginn 18. nóvember sl. Bogi fjallaði í erindi sínu um tónlist Bítlanna, sögu og áhrif á heiminn og mannlífið. Bogi miðlaði í orðum sínum mikilli þekkingu á Bítlunum og mátti finna fyrir vinnubrögðum hins þaulreynda fréttamanns í umfjöllun hans og framsetningu. Bogi dró fram skemmtileg og áhugaverð atriði úr sögu Bítlanna og spilaði tóndæmi. Um 100 manns tóku þátt í dagskránni. 

Séra Sólveig Franklínsdóttir hefur um þessar mundir umsjón með eldri rborgarastarfinu í leyfi Hólmfríðar Ólafsdóttur djákna. 

Við þökkum Boga innilega fyrir skemmtilegt og áheyrilegt erindi og öllum fyrir þátttökuna. 

Verið hjartanlega velkomin til þátttöku í helgihaldi og dagskrá Bústaðakirkju.   

Um 100 manns mættu í eldri borgarastarfið