Mikilvæg umræða
Fermingarfræðslan er í fullum gangi í Fossvogsprestakalli. Fermingarkrakkarnir mæta að jafnaði til vikulegrar fermingarfræðslu í þeirri kirkju sem þau munu fermast í.
Þessa vikuna var breytt út af venjunni þar sem dagskráin fór fram á þriðjudagskvöldi í Bústaðakirkju og voru foreldrar og forráðamenn jafnframt boðuð til þátttöku. Þakkarefni var hve foreldrar hlýddu kallinu vel og mættu almennt vel með börnum sínum. En umræðan um sorg og missi er mikilvæg og dýrmætt að geta fylgt henni eftir á heimavelli.
Séra Sigríður Kristín Helgadóttir prestur í Bústaðakirkju og Grensáskirkju leiddi stundina og hafði orð fyrir prestunum, sem allir tóku vel á móti fermingarbörnunum og foreldrum þeirra. Ásta Haraldsdóttir organisti Grensáskirkju lék á flygil.
Séra Sigríður Kristín ræddi m.a. um eðlilegar og heilbrigðar tilfinningar sem tengjast úrvinnslu áfalla. Hún fræddi fermingarbörnin einnig um hlutverk kirkjunnar þegar andlát ber að höndum og kynnti fyrir þeim hvað felst í athöfnum kirkjunnar, kistulagningu og útför. Séra Sigríður Kristín kom meðal annars inn á að lykilatriði við úrvinnslu áfalla er að gangast við tilfinningum sínum og tala um þær, koma þeim í farsælan farveg í eyru þeirra sem þykir vænt um okkur og við vitum að vilja reynast okkur vel. Ávallt er mikilvægt að allir hafi einhvern til að leita til þegar við stöndum í stórræðum og einmitt þegar við erum ung, á fermingaraldri, þá er mikilvægt að leita til einhvers fullorðins sem við treystum. Verum til staðar fyrir hvert annað, hlustum og styðjum.
Við þökkum góða þátttöku fermingarbarna og foreldra á fræðslukvöldi um sorg og viðbrögð við missi.