09
2026 November

Vettvangur söngs og samveru, góðrar tengslamyndunar

Foreldramorgnarnir í Bústaðakirkju fara fram alla fimmtudaga kl. 10-12. 

Ragnheiður Bjarnadóttir tónlistarkennari hefur umsjón með dagskránni. 

Foreldramorgnarnir eru vettvangur foreldra með ung börn sín, þar sem vel er tekið á móti öllum. 

Ragnheiður leiðir hópinn í söng og leikur undir á píanó. 

Leikföng og leikteppi, veitingar og góð umgjörð til tengslamyndunar.

Verið hjartanlega velkomin á foreldramorgna í Bústaðakirkju. 

Ragnheiður Bjarnadóttir tónlistarkennari

Ragnheiður Bjarnadóttir tónlistarkennari hefur umsjón með dagskránni.