Íris Björk, Herdís Anna, Matthildur Anna og Bjarni
Stórkostlegir óperutónar voru á dagskrá í Bleikum október í Bústaðakirkju í gær, miðvikudaginn 21. október kl. 12:05.
Þá fóru fram hádegistónleikar í Bleikum október í Bústaðakirkju þar sem Íris Björk Gunnarsdóttir og Herdís Anna Jónasdóttir sungu og með þeim lék á flygil Matthildur Anna Gísladóttir.
Dagskráin var fjölbreytt, þær sungu einsöng og einnig dúett. Dúettinn sem þær fluttu er úr óperunni 27 sem frumflutt verður í Borgarleikhúsinu í lok mánaðarins. Bjarni Snæbjörnsson leikstjóri kynnti þá uppfærslu og hina merkilegu sögu sem óperan miðlar.
Tónleikagestir, sem töldu hátt í hundrað manns, voru himinlifandi með dagskrána og þökkuðu listafólkinu með þéttu lófataki.
Aðgangur var ókeypis en tekið var við framlögum til Ljóssins. Einnig voru bleiku slaufur Krabbameinsfélagsins til sölu.
Um leið og við hvetjum alla til að sækja Borgarleikhúsið og óperu 27 í lok mánaðarins, þökkum við listafólkinu sitt dýrmæta framlag til Bleiks október í Bústaðakirkju.
Við þökkum öllum komuna og hlökkum til að sjá ykkur aftur í Bústaðakirkju.
Dagskráin í Bleikum október í Bústaðakirkju 2026
Dagskráin í Bleikum október í Bústaðakirkju þetta árið, má sjá hér á plakatinu.