Ráðgjafi hjá Kvennaathvarfinu
Mánudaginn 9. nóvember sl. var haldinn fundur í Kvenfélagi Bústaðasóknar.
Ísold Björk Karlsdóttir ráðgjafi hjá Kvennaathvarfinu var gestur kvöldsins og kynnti starfsemi Kvennaathvarfsins.
Kvenfélag Bústaðasóknar styður starfsemi Kvennaathvarfsins með fjárframlögum nú í nóvember.
Við þökkum Ísold Björk innilega fyrir komuna og biðjum kærleikans Guð að blessa starfsemi Kvennaathvarfsins.
Margt framundan hjá Kvenfélagi Bústaðasóknar.
Framundan hjá Kvenfélagi Bústaðasóknar
Kvennamessa fer fram í Bústaðakirkju sunnudaginn 15. nóvember nk. kl. 13:00. Séra Laufey Brá Jónsdóttir prédikar og þjónar fyrir altaris ásamt messuþjónum og kvenfélagskonum. Kvenfélagið mun standa fyrir vöfflusölu og basar í tengslum við messuna.
Öll innkoma Kvenfélagsins í nóvember rennur til Kvennaathvarfsins.
Jólafundur Kvenfélagsins fer fram mánudaginn 14. desember nk. kl. 18:00. Skráning stendur yfir og má senda skráningu á netfangi kvenfelagbustadasoknar@gmail.com eða í skilaboðum á Facebook síðu félagsins.
Verið hjartanlega velkomin til þátttöku í Kvenfélagi Bústaðasóknar.