Full Bústaðakirkja í Bleikum október
Bleikur október í Bústaðakirkju var afskaplega vel sóttur, þetta árið. Hádegistónleikar fóru fram alla miðvikudagana í október kl. 12:05. Ókeypis aðgangur var á tónleikana, en tekið var á móti frjálsum fjárframlögum til Ljóssins, eins og undanfarin ár. Bleika slaufa Krabbameinsfélagsins var einnig til sölu.
Örn Árnason leikari og skemmtikraftur og Jónas Þórir organisti fylltu Bústaðakirkju á síðustu hádegistónleikunum í Bleikum október, að þessu sinni. Þeir fluttu vel valdar revíur og gamanmál. Séra Sigríður Kristín Helgadóttir annaðist um kynningu og bænastund í lok tónleikanna.
Boðið var upp á súpu í safnaðarheimilinu að tónleikum loknum.
Síðasti viðburðurinn á dagskránni í Bleikum október er Allra heilagra messa, sem fram fer sunnudaginn 1. nóvember nk. kl. 13:00. Þar munu einsöngvarar úr Kammerkór Bústaðakirkju syngja. Matthías Stefánsson leikur á fiðlu og Jónas Þórir að flygil og orgel. Tónlist eftir Bach og Mozart verður á dagskránni í bland við þekkta sálma. Séra Þorvaldur Víðisson prédikar og þjónar fyrir altari ásamt messuþjónum. Minnst verður látinna, þar sem viðstaddir fá tækifæri til að tendra á minningarljósi á bænaaltarinu.
Hér má sjá dagskrána sem fram hefur farið í Bleikum október.
Við þökkum öllu listafólkinu framlag sitt til Bleiks október og tónleikagestum fyrir komuna.
Verið hjartanlega velkomin í Bústaðakirkju.
Dagskráin í Bleikum október í Bústaðakirkju
Dagskráin sem fram fór í Bleikum október í Bústaðakirkju er hér til hliðar.