Sr. Sólveig Franklínsdóttir
Hólmfríður Ólafsdóttir
Andrea Þóra Ásgeirsdóttir
Mánudaginn 9. nóvember sl. var haldinn fundur í Kvenfélagi Bústaðasóknar. Ísold Björk Karlsdóttir ráðgjafi hjá Kvennaathvarfinu var gestur kvöldsins og kynnti starfsemi Kvennaathvarfsins. Kvenfélag Bústaðasóknar styður starfsemi Kvennaathvarfsins með fjárframlögum nú í nóvember. Við þökkum Ísold Björk innilega fyrir komuna og biðjum kærleikans Guð að blessa starfsemi Kvennaathvarfsins. Kvennamessa fer fram í Bústaðakirkju 15. nóvember nk. og jólafundur kvenfélagsins verður svo 14. desember. Skráning á jólafundinn stendur yfir.
Foreldramorgnarnir í Bústaðakirkju fara fram alla fimmtudaga kl. 10-12. Ragnheiður Bjarnadóttir tónlistarkennari hefur umsjón með dagskránni. Foreldramorgnarnir eru vettvangur foreldra með ung börn sín, þar sem vel er tekið á móti öllum. Ragnheiður leiðir hópinn í söng og leikur undir á píanó. Leikföng og leikteppi, veitingar og góð umgjörð til tengslamyndunar. Verið hjartanlega velkomin á foreldramorgna í Bústaðakirkju.
Gospelmessa fór fram í Grensáskirkju sunnudagskvöldið 8. nóvember sl. kl. 20:00. Gospelkórinn Vox Gospel söng undir stjórn Sigurðar Ingimarssonar. Einsöngvarar úr kórnum sungu einsöng. Prestur var séra Þorvaldur Víðisson. Kraftmikil gospeltónlist var á dagskránni. Við þökkum öllum fyrir þátttökuna og dásamlega kvöldstund í Grensáskirkju. Verið hjartanlega velkomin til þátttöku í kirkjustarfinu.