Berum hvert annað á bænarörmum
17 bænaljós loga á altari Grensáskirkju á þessum fimmtudagsmorgni, 26. nóvember. Við biðjum fyrir áhöfn Jökuls ÞH og fjölskyldum skipverjanna og ástvinum öllum. Við biðjum um huggun og styrk.
Við þökkum viðbragðsaðilum þrekvirkið. Þökkum samstillt átak þeirra margra sem komu að þessu ótrúlega björgunarafreki.
Saman skulum við bera hvert annað á bænarörmum.
Í einum sálmi hr. Sigurbjörns Einarssonar biskups segir:
Sú von er sterk, hún verður eigi slökkt,
að vorið komi þó að geisi hríð.
Eins sigrar Drottinn alla ógn og stríð.
Og þó að dauðinn hremmi hart og snöggt
er hönd að baki, mild og trú og góð,
hún leiðir fram til ljóss um myrka slóð.
Þótt lán sé brothætt, lífið valt og stökkt,
er líkn í hverri raun og tári manns
því þar er Kristur, kross og páskar hans.
Og þegar hylur húmið svalt og dökkt
þinn heim og salta döggin vætir kinn
þá kemur hann og færir friðinn sinn.
Sú von er sönn, hún verður aldrei slökkt,
hún vekur þína sál við hinsta ós,
að Kristur breytir öllu’ í eilíft ljós.
(Sálmur 679)