25
2026 November

Edda Austmann Harðardóttir

Aðventuhátíð Bústaðakirkju fer fram á fyrsta sunnudegi í aðventu, 29. nóvember nk. kl. 17:00. Kammerkór Bústaðakirkju syngur, ásamt einsöngvurum úr kórnum, við undirleik Jónasar Þóris og hljómsveitar. Barnakór Fossvogs syngur undir stjórn Auðar Guðjohnsen og Þórunnar Díu Steinþórsdóttur. Þorsteinn Gunnarsson borgarritari flytur hátíðarræðu. 

Edda Austmann Harðardóttir mun á aðventuhátíðinni frumflytja nýtt jólalag Björgvins Þ. Valdimarssonar við texta Hinriks Bjarnasonar, Jól. 

Verið hjartanlega velkomin á aðventuhátíð Bústaðakirkju.