Viðburðir
Viðburðir
  • umsjón

    Ragnheiður Bjarnadóttir

    Foreldramorgnar í Bústaðakirkju, verið velkomin

  • umsjón

    Sólveig Franklínsdóttir
    Ásta Haraldsdóttir
    Sr. Sigríður Kristín Helgadóttir

    Æskulýðsdagurinn í Grensáskirkju

  • umsjón

    Sólveig Franklínsdóttir
    Ásta Haraldsdóttir

    Stúlknakór Reykjavíkur og vöfflukaffi til styrktar Ljósinu í bláum mars

Þjónusta
Fréttir
Fréttir
  • Date
    25
    2026 February

    Blár mars að hefjast í Grensáskirkju

    Blár mars er að hefjast í Grensáskirkju. Karlar og krabbamein verður sem sagt á dagskrá þar sem þátttakendur fá tækifæri til að styðja Ljósið og Krabbameinsfélagið. Söngur, fræðsla, vöfflusala, skemmtidagskrá, tónleikar og ýmsir aðrir viðburðir eru á dagskránni. Fjöldi fólks kemur að framkvæmdinni, eins og Skólahljómsveit Austurbæjar, Karlakór KFUM, Karlakór Kópavogs, Æskulýðsfélagið Poný og fleiri. Dagskráin í heild mun birtast hér á heimasíðunni. Verið hjartanlega velkomin til þátttöku í Bláum mars í Grensáskirkju. 

  • Date
    07
    2026 February

    Hæfileikamessa unga fólksins

    Guðsþjónusta fyrsta sunnudags í níuvikna föstu í Grensáskirkju var helguð leiðtogunum í barna- og æskulýðsstarfi Fossvogsprestakalls er leiddu þjónustuna. Þá fór fram fjölskyldumessa með gjörningi, þar sem umfjöllunarefni dagsins var hæfileikar. Ásta Haraldsdóttir kantor leiddi tónlistina og stjórnaði Kór Grensáskirkju. Séra Laufey Brá Jónsdóttir og Sólveig Franklínsdóttir æskulýðsfulltrúi voru unga fólkinu til aðstoðar. Þær sögðu frá guðspjalli dagsins og fengu nokkur fermingarbörn til þess að leika með í frásögunni. Þetta var létt og skemmtileg messa þar sem unga fólkið fékk að láta ljós sitt skína. Þá flutt þau Gréta Petrína Zimsen og Gabríel Bjarmi Jónsson líflega samtalshugvekju með leik og þátttöku fólks er fjallaði um hæfileika okkar og  hvernig við förum með gjafirnar sem Guð hefur gefið okkur.

  • Date
    27
    2026 January

    Stóri kótilettudagurinn í Bústaðakirkju

    Stóri kótilettudagurinn verður haldinn í Bústaðakirkju miðvikudaginn 4. febrúar nk. kl. 12:00. Húsið opnar kl. 12:00 og hefst maturinn kl. 12:30. Kótilettur með gamla laginu og meðlæti. Kaffi og konfekt í eftirrétt. Verð kr. 3.500.- á mann. Ketill Ágústsson spilar á gítar og syngur. Skráning í Bústaðakirkju í síma 553-8500 eða með tölvupósti á holmfridur@kirkja.is. Bókið sem fyrst þar sem fjöldi gesta er takmarkaður. Verið hjartanlega velkomin á stóra kótilettudaginn í Bústaðakirkju. 

Fastir liðir

Helgihald

Viðburðir
  • Bústaðakirkja

    Barnamessa í Bústaðakirkju sunnudaga kl. 11 yfir vetrartímann

    Söngur, gleði, biblíusögur og brúður einkenna barnamessurnar

  • Grensáskirkja

    Guðsþjónusta í Grensáskirkju sunnudaga kl. 11

    Prestar safnaðarins, Ásta Haraldsdóttir og Kirkjukór Grensáskirkju leiða helgihaldið

  • Bústaðakirkja

    Guðsþjónusta í Bústaðakirkju sunnudaga kl. 13 á veturna, en kl. 20 á sumrin.

    Prestar safnaðarins, Jónas Þórir og Kammerkór Bústaðakirkju leiða helgihaldið