Sr. Þorvaldur Víðisson
Ásta Haraldsdóttir
Sigurlaug Kristín Hraundal
Sr. Sigríður Kristín Helgadóttir
Sr. Laufey Brá Jónsdóttir
Bleikur október í Bústaðakirkju fer vel af stað þetta árið. Jónas Þórir ásamt hljómsveit riðu á vaðið á fyrstu hádegistónleikum mánaðarins, miðvikudaginn 7. október sl., með sálmajassi. Með Jónasi Þóri var hljómveit, þar sem Gunnar Hrafnsson lék á bassa, Einar Valur Scheving á trommur og Sigurður Flosason á saxafón. Við þökkum tónlistarsmönnunum framlag sitt til þessa góða málefnis og fyrir stórskemmtilega tónleika. Verið hjartanlega velkomin til dagskrárinnar í Bleikum október í Bústaðakirkju.
Fermingarbörnin í Bústaðakirkju og Grensáskirkju fengu Nýja testamentið að gjöf í fermingarfræðslutímanum í liðinni viku. Félagsmenn í félaginu Orðið, félagi um útbreiðslu Guðs orðs, komu færandi hendi og afhentu hverju og einu fermingarbarni testamentið að gjöf. Samhliða hvöttu prestarnir börnin og fjölskyldurnar til að lesa Nýja testamentið. Hjálpumst að við að rækta heilbirgða trú með lestri á textum Biblíunnar. Heilbrigð trú einkennist af kærleika og virðingu, umhyggju og upprisu.
Kirkjukór Grensáskirkju auglýsir eftir nýju söngfólki í allar raddir. Æfingar fara fram í Grensáskirkju á mánudögum kl. 17:30-19:00. Opnar æfingar verða í október kl. 17:00 þar sem hægt er að mæta, kynnast þeim sem fyrir eru og syngja saman. Öll eru velkomin, með eða án tónlistarmenntunar. Nánari upplýsingar veitir Ásta Haraldsdóttir organisti. Viltu koma og syngja í kór? Vertu hjartanlega velkomin(n)!