Ásta Haraldsdóttir
Sr. Laufey Brá Jónsdóttir
Blár mars í Grensáskirkju hófst með dagskrá á æskulýðsdaginn, sunnudaginn 1. mars sl. Dagskráin í Bláum mars heldur áfram. Nú á sunnudaginn er yfirskrift helgihaldsins Karlar og bænir. Á miðvikudagskvöldið 11. mars kl. 20 verður síðan boðið til dagskrár þar sem Matti Ósvald flytur erindi um karla og krabbamein. Robert Heimir fjallar um reynslu sína að greinast með krabbamein. Karlakór Kópavogs syngur. Verið hjartanlega velkomin til áframhaldandi þátttöku í Bláum mars í Grensáskirkju.
Æskulýðsdagurinn var haldinn hátíðlegur í Bústaðakirkju og Grensáskirkju. Gríðarleg þátttaka var í kirkjum Fossvogsprestakalls á æskulýðsdaginn. Blár mars hófst í Grensáskirkju þann dag. Við þökkum öllum fyrir þátttökuna og sérstaklega börnum og ungmennum sem settu fagran lit á daginn í báðum kirkjum.