Ragnheiður Bjarnadóttir
Árleg söfnun fermingarbarna fyrir Hjálparstarf kirkjunnar fór fram í Fossvogsprestakalli í gær, miðvikudaginn 4. nóvember. Fermingarbörnin gengu hús úr húsi, tvö eða fleiri saman í hópum, með bauka frá Hjálparstarfi kirkjunnar, og buðu fólki að styðja við starf Hjálparstarfsins með fjárframlagi. Góð þátttaka var hjá fermingarbörnum í Bústaðakirkju og Grensáskirkju, sem stóðu sig prýðilega á söfnunardeginum. Við þökkum fermingarbörnunum þátttökuna og einnig öllum sem lögðu Hjálparstarfi kirkjunnar lið og tóku vel á móti fermingarbörnunum.
Myndlistarsýning Önnu Eyjólfsdóttur myndlistarkonu stendur yfir í safnaðarheimili Grensáskirkju. Kirkjan er opin mánudaga til fimmtudaga kl. 10-15 og um helgar, í tengslum við helgihald kirkjunnar. Sýningin mun standa til fimmtudagsins 26. nóvember nk. Verið hjartanlega velkomin á myndlistarsýningu Önnu Eyjólfsdóttur í Grensáskirkju.
Séra Benedikt Sigurðsson prestur í Garðabæ var gestur dagsins í eldri borgarastarfinu í Bústaðakirkju í gær. Benni Sig, eins og hann er gjarnan kallaður lék á harmonikku og leiddi söng, á sinn einstaka og hlýlega máta. Sungnir voru sálmar og falleg dægurlög, boðskapurinn vonarríkur og kærleiksríkur. Séra Sólveig Franklínsdóttir leiddi dagskrána í eldri borgarastarfinu í fjarveru Hólmfríðar Ólafsdóttur djákna. Við þökkum Benna Sig innilega fyrir komuna í eldri borgarastarfið í Bústaðakirkju.