Viðburðir
  • umsjón

    Sr. Sólveig Franklínsdóttir
    Hólmfríður Ólafsdóttir
    Andrea Þóra Ásgeirsdóttir

    Félagsstarf eldri borgara í Bústaðakirkju - Elvis Ísland kemur í heimsókn

  • umsjón

    Ragnheiður Bjarnadóttir

    Foreldramorgnar í Bústaðakirkju, verið velkomin

  • umsjón

    Ásta Haraldsdóttir
    Sr. Sigríður Kristín Helgadóttir

    Krakkasálmar og guðsþjónusta í Grensáskirkju

  • umsjón

    Ásta Haraldsdóttir
    Sr. Laufey Brá Jónsdóttir

    Kvenfélagsmessa í Bústaðakirkju

  • umsjón

    Sr. Þorvaldur Víðisson
    Andrea Þóra Ásgeirsdóttir

    Prjónakaffi í Bústaðakirkju

  • umsjón

    Sr. Þorvaldur Víðisson
    Ásta Haraldsdóttir
    Sigurlaug Kristín Hraundal
    Sr. Sigríður Kristín Helgadóttir
    Sr. Laufey Brá Jónsdóttir

    Viltu láta biðja fyrir þér og þínum?

Þjónusta
Fréttir
  • Date
    11
    2026 November

    Ísól Björk Karlsdóttir gestur á fundi Kvenfélags Bústaðasóknar

    Mánudaginn 9. nóvember sl. var haldinn fundur í Kvenfélagi Bústaðasóknar. Ísold Björk Karlsdóttir ráðgjafi hjá Kvennaathvarfinu var gestur kvöldsins og kynnti starfsemi Kvennaathvarfsins. Kvenfélag Bústaðasóknar styður starfsemi Kvennaathvarfsins með fjárframlögum nú í nóvember. Við þökkum Ísold Björk innilega fyrir komuna og biðjum kærleikans Guð að blessa starfsemi Kvennaathvarfsins. Kvennamessa fer fram í Bústaðakirkju 15. nóvember nk. og jólafundur kvenfélagsins verður svo 14. desember. Skráning á jólafundinn stendur yfir. 

  • Date
    09
    2026 November

    Foreldramorgnarnir í Bústaðakirkju

    Foreldramorgnarnir í Bústaðakirkju fara fram alla fimmtudaga kl. 10-12. Ragnheiður Bjarnadóttir tónlistarkennari hefur umsjón með dagskránni. Foreldramorgnarnir eru vettvangur foreldra með ung börn sín, þar sem vel er tekið á móti öllum. Ragnheiður leiðir hópinn í söng og leikur undir á píanó. Leikföng og leikteppi, veitingar og góð umgjörð til tengslamyndunar. Verið hjartanlega velkomin á foreldramorgna í Bústaðakirkju. 

  • Date
    09
    2026 November

    Gríðarleg stemmning í gospelmessu í Grensáskirkju

    Gospelmessa fór fram í Grensáskirkju sunnudagskvöldið 8. nóvember sl. kl. 20:00. Gospelkórinn Vox Gospel söng undir stjórn Sigurðar Ingimarssonar. Einsöngvarar úr kórnum sungu einsöng. Prestur var séra Þorvaldur Víðisson. Kraftmikil gospeltónlist var á dagskránni. Við þökkum öllum fyrir þátttökuna og dásamlega kvöldstund í Grensáskirkju. Verið hjartanlega velkomin til þátttöku í kirkjustarfinu. 

Fastir liðir

Helgihald