Viðburðir
  • umsjón

    Sr. Sigríður Kristín Helgadóttir

    Sunnudagaskóli og guðsþjónusta í Bústaðakirkju

  • umsjón

    Sr. Þorvaldur Víðisson
    Ásta Haraldsdóttir

    Kristniboðsdagurinn í Grensáskirkju

  • umsjón

    Sr. Þorvaldur Víðisson

    Krakkasálmar í Grensáskirkju, á meðan á messunni stendur

  • umsjón

    Ásta Haraldsdóttir
    Sr. Sigríður Kristín Helgadóttir

    Guðsþjónusta í Bústaðakirkju

  • umsjón

    Sr. Þorvaldur Víðisson
    Ásta Haraldsdóttir
    Sr. Sigríður Kristín Helgadóttir
    Sr. Laufey Brá Jónsdóttir

    Gospelmessa í Grensáskirkju

  • umsjón

    Sr. Þorvaldur Víðisson
    Andrea Þóra Ásgeirsdóttir

    Kvenfélag Bústaðakirkju, spennandi dagskrá

Þjónusta
Fréttir
  • Date
    08
    2026 November

    Krakkasálmarnir vel sóttir í Grensáskirkju

    Góð mæting var í krakkasálmana í dag, sunnudaginn 8. nóvember. Dagskrá Krakkasálmanna hefst í messunni kl. 11 og síðan ganga börnin saman með leiðtogum sínum, Iðunni og Grétu, yfir í safnaðarheimilið þar sem barnadagskráin fer fram. Í Krakkasálmunum ganga börnin inn í Biblíusöguna. Þau verða þátttakendur í frásögunni með búningum og skemmtilegheitum. Einnig eru barnasálmarnir sungnir og bænirnar á sínum stað. Verið hjartanlega velkomin til þátttöku í barnastarfinu á sunnudögum. 

  • Date
    05
    2026 November

    Fermingarbörnin létu gott af sér leiða

    Árleg söfnun fermingarbarna fyrir Hjálparstarf kirkjunnar fór fram í Fossvogsprestakalli í gær, miðvikudaginn 4. nóvember. Fermingarbörnin gengu hús úr húsi, tvö eða fleiri saman í hópum, með bauka frá Hjálparstarfi kirkjunnar, og buðu fólki að styðja við starf Hjálparstarfsins með fjárframlagi. Góð þátttaka var hjá fermingarbörnum í Bústaðakirkju og Grensáskirkju, sem stóðu sig prýðilega á söfnunardeginum. Við þökkum fermingarbörnunum þátttökuna og einnig öllum sem lögðu Hjálparstarfi kirkjunnar lið og tóku vel á móti fermingarbörnunum. 

  • Date
    05
    2026 November

    Anna Eyjólfsdóttir myndlistarkona með sýningu í Grensáskirkju

    Myndlistarsýning Önnu Eyjólfsdóttur myndlistarkonu stendur yfir í safnaðarheimili Grensáskirkju. Kirkjan er opin mánudaga til fimmtudaga kl. 10-15 og um helgar, í tengslum við helgihald kirkjunnar. Sýningin mun standa til fimmtudagsins 26. nóvember nk. Verið hjartanlega velkomin á myndlistarsýningu Önnu Eyjólfsdóttur í Grensáskirkju. 

Fastir liðir

Helgihald