Kirkjuprakkarar í Grensáskirkju

Kirkjuprakkarar í Grensáskirkju eru á aldrinum 6-9 ára (1.-4. bekk). Foreldrar skrá börn sín til þátttöku með því að fylla út skráningarupplýsingar, hér á heimasíðunni, eða með því að senda upplýsingarnar á netfangið solveig@kirkja.is. Umsjónarmenn starfsins og leiðtogar sækja börnin sem skráð eru yfir í Krakkakot, frístundarheimilið Hvassaleitisskóla og fylgja þeim yfir í Grensáskirkju, sé þess óskað. Börn sem ekki eru í Hvassaleitisskóla geta mætt beint í Grensáskirkju. Að starfinu loknu er börnunum fylgt í frístundaheimilið eða forráðamenn sækja börnin í kirkjuna eða þau bjarga sér heim, sjá skráningarblaðið

Hvar?

Í Grensáskirkju, safnaðarheimilinu og kirkjunni. Gengið inn um aðaldyr kirkjunnar.

Sjö gildi í góðum samskiptum

Yfirskirftin að þessu sinni er Sjö gildi í góðum samskiptum. Við munum vinna með sjö jákvæð gildi í samskiptum með því að segja sögur og skapa list sem tengjast gildunum. Við munu þannig efla tengsl barnanna og skilning á gildunum og styrkja sjálfsmynd þeirra.

Gildin sem fjallað verður um eru: vinátta, fyrirgefning, samkennd, gleði, traust, virðing og þakklæti.

Hvenær?

Á þriðjudögum kl. 14:50-16:00 og einn sunnudag kl. 11:00. 
 
Dagskrá:

Þriðjudaginn 7. mars - Vinátta
Þriðjudaginn 14. mars - Fyrirgefningin
Þriðjudaginn 21. mars samkennd
Þriðjudaginn 28. mars - Gleði
Þriðjudaginn 11. apríl - Traust
Þriðjudaginn 18. apríl - Virðing
Sunnudaginn 23. apríl Þakklæti og uppskeruhátið

Verið hjartanlega velkomin í kirkjuprakkara í Grensáskirkju.