Ragnheiður Bjarnadóttir
Í Bústaðakirkju starfa nokkrir hópar messuþjóna. Messuþjónarnir annast um ýmiskonar þjónustu í helgihaldi kirkjunnar, svo sem lestur ritningarlestra, móttöku á kirkjugestum, umsjón með kirkjukaffi, uppröðun á sálmanúmerum og fleiru. Þriðjudaginn 1. september nk. kl. 16:30 verður haldinn kynningarfundur varðandi störf messuþjóna í Bústaðakirkju og nýir þátttakendur sérstaklega boðnir velkomnir. Áhugasamir eru hjartanlega velkomnir.
Grensássöfnuður gaf Hallgrímskirkju í Saurbæ orgel. Gjöfinni var fylgt úr hlaði með safnaðarferð að lokinni messu í Grensáskirkju sunnudaginn 16. ágúst sl. Sameiginleg messa fór fram í Hallgrímskirkju að þessu tilefni, sunnudaginn 16. ágúst kl. 14. Við þökkum hlýjar móttökur í Hallgrímskirkju og einnig öllum sem tóku þátt í safnaðarferðinni innilega fyrir samveruna á þessum viðburðarríka degi.
Biskup Íslands kynnti fyrir skömmu samstarf þjóðkirkjunnar og Minningarsjóðs Ólafar Töru. Á grundvelli þess samstarfs býðs baráttufólki gegn kynbundnu ofbeldi nú sérstök sálgæsla og handleiðsla hjá séra Laufeyju Brá Jónsdóttur presti í Fossvogsprestakalli. Í Fossvogsprestakalli fögnum við þessu frumkvæði biskups og einnig því að Fossvogsprestakall skuli vera vettvangur framkvæmdarinnar og að séra Laufeyju Brá Jónsdóttur skuli hafa verið falið þetta ábyrgðarhlutverk.