Sr. Þorvaldur Víðisson
Ásta Haraldsdóttir
Sigurlaug Kristín Hraundal
Sr. Sigríður Kristín Helgadóttir
Sr. Laufey Brá Jónsdóttir
Fræðsla um sorg og missi fór fram með fermingarbörnum og foreldrum þriðjudagskvöldið 20. október sl. Séra Sigríður Kristín Helgadóttir prestur í Bústaðakirkju og Grensáskirkju leiddi stundina. Við þökkum góða þátttöku fermingarbarna og foreldra á fræðslukvöldi um sorg og viðbrögð við missi.
Stórkostlegir óperutónar voru á dagskrá í Bleikum október í Bústaðakirkju í gær, miðvikudaginn 21. október kl. 12:05. Þá fóru fram hádegistónleikar í Bleikum október í Bústaðakirkju þar sem Íris Björk Gunnarsdóttir og Herdís Anna Jónasdóttir sungu og með þeim lék á flygil Matthildur Anna Gísladóttir. Bjarni Snæbjörnsson leikstjóri kynnti óperuna 27, sem frumflutt verður í Borgarleikhúsinu í lok mánaðarins. Við þökkum listafólkinu sitt dýrmæta framlag og öllum fyrir komuna. Hlökkum til að sjá ykkur aftur í Bústaðakirkju.
Sóli Hólm sló í gegn í Bleikum október í Bústaðakirkju. Tónleikagestir veltust um að hlátri. Sóli er stórkostleg eftirherma og grínisti og brá sér í líki Gylfa Ægissonar, Páls Óskars Hjálmtýssonar, Pálma Gunnarssonar og fleiri þjóðþekktra einstaklinga. Jónas Þórir lék á flygil. Hátt í 200 tónleikagestir mættu á hádegistónleikana með Sóla Hólm og Jónasi Þóri miðvikudaginn 14. október kl. 12:05. Dagskráin er litrík framundan. Verið hjartanlega velkomin til þátttöku í Bleikum október í Bústaðakirkju.