![](/sites/default/files/styles/squared_small/public/2023-03/kirkjuprakkarar_grensaskirkju_vorid_2023.png.jpg?itok=qu6hQv1S)
Kirkjuprakkarar, 6-9 ára í Grensáskirkju
Kirkjuprakkarar í Grensáskirkju eru á aldrinum 6-9 ára (1.-4. bekk). Foreldrar skrá börn sín til þátttöku með því að fylla út skráningarupplýsingar, hér á heimasíðunni, eða með því að senda upplýsingarnar á netfangið solveig@kirkja.is. Umsjónarmenn starfsins og leiðtogar sækja börnin sem skráð eru yfir í Krakkakot, frístundarheimilið Hvassaleitisskóla og fylgja þeim yfir í Grensáskirkju, sé þess óskað. Börn sem ekki eru í Hvassaleitisskóla geta mætt beint í Grensáskirkju. Að starfinu loknu er börnunum fylgt í frístundaheimilið eða forráðamenn sækja börnin í kirkjuna eða þau bjarga sér heim, sjá skráningarblaðið.
![](/sites/default/files/styles/squared_small/public/2023-03/ttt_4.png.jpg?itok=AGHunJ4L)
TTT fyrir 10-12 ára
Tíu til tólf ára starfið eða TTT í Grensáskirkju er eins og nafnið gefur til kynna starf fyrir börn á aldrinum 10-12 ára eða í 5.-7. bekk. Foreldrar skrá börn sín til þátttöku með því að fylla út skráningarblaðið, sem fylgir þessu bréfi, einnig hægt að fylla það út á heimasíðu kirknanna, kirkja.is, eða með því að senda upplýsingarnar á netfangið solveig@kirkja.is. Börnin mæta sjálf í starfið í safnaðarheimili Grensáskirkju en gengið er inn um aðaldyr kirkjunnar.
Hér er hægt að skrá sig í starfið https://kirkja.is/skraningar/ttt
Yfirskirftin að þessu sinni er Sjö gildi í góðum samskiptum. Við munum vinna með sjö jákvæð gildi í samskiptum með því að segja sögur og skapa list sem tengjast gildunum. Við munu þannig efla tengsl barnanna og skilning á gildunum og styrkja sjálfsmynd þeirra.
Gildin sem fjallað verður um eru: vinátta, fyrirgefning, samkennd, gleði, traust, virðing og þakklæti.
![](/sites/default/files/styles/squared_small/public/2022-12/grensaskirkja_toppurinn_2022.jpg?h=606c29e5&itok=LbQTtLjB)
Verið hjartanlega velkomin í barna- og æskulýðsstarfið í Grensáskirkju og Fossvogsprestakalli
Verið hjartanlega velkomin í Grensáskirkju. Nánari upplýsingar um barnastarfið má finna hér á heimasíðunni. Skráning fer fram á staðnum en einnig hér á síðunni.