14
2024 maí

Kirkjuprakkarar, 6-9 ára í Grensáskirkju

Kirkjuprakkarar í Grensáskirkju eru á aldrinum 6-9 ára (1.-4. bekk). Foreldrar skrá börn sín til þátttöku með því að fylla út skráningarupplýsingar, hér á heimasíðunni, eða með því að senda upplýsingarnar á netfangið solveig@kirkja.is. Umsjónarmenn starfsins og leiðtogar sækja börnin sem skráð eru yfir í Krakkakot, frístundarheimilið Hvassaleitisskóla og fylgja þeim yfir í Grensáskirkju, sé þess óskað. Börn sem ekki eru í Hvassaleitisskóla geta mætt beint í Grensáskirkju. Að starfinu loknu er börnunum fylgt í frístundaheimilið eða forráðamenn sækja börnin í kirkjuna eða þau bjarga sér heim, sjá skráningarblaðið.  

TTT fyrir 10-12 ára

Tíu til tólf ára starfið eða TTT í Grensáskirkju er eins og nafnið gefur til kynna starf fyrir börn á aldrinum 10-12 ára eða í 5.-7. bekk. Foreldrar skrá börn sín til þátttöku með því að fylla út skráningarblaðið, sem fylgir þessu bréfi, einnig hægt að fylla það út á heimasíðu kirknanna, kirkja.is, eða með því að senda upplýsingarnar á netfangið solveig@kirkja.is. Börnin mæta sjálf í starfið í safnaðarheimili Grensáskirkju en gengið er inn um aðaldyr kirkjunnar.

Hér er hægt að skrá sig í starfið https://kirkja.is/skraningar/ttt

Yfirskirftin að þessu sinni er Sjö gildi í góðum samskiptum. Við munum vinna með sjö jákvæð gildi í samskiptum með því að segja sögur og skapa list sem tengjast gildunum. Við munu þannig efla tengsl barnanna og skilning á gildunum og styrkja sjálfsmynd þeirra.

Gildin sem fjallað verður um eru: vinátta, fyrirgefning, samkennd, gleði, traust, virðing og þakklæti.

Verið hjartanlega velkomin í barna- og æskulýðsstarfið í Grensáskirkju og Fossvogsprestakalli

Verið hjartanlega velkomin í Grensáskirkju. Nánari upplýsingar um barnastarfið má finna hér á heimasíðunni. Skráning fer fram á staðnum en einnig hér á síðunni.