Vinavoðir félagsskapur sem prjóna saman til góðs.
Vinavoðir félagsskapur sem prjóna saman til góðs.
Vinavoðir eru hópur sem hittist á fimmtudögum í kirkjunni og prjóna til góðs. Afrakstur samveranna munu prestar og djákni í prestakallinu afhenda til þeirra sem misst hafa ástvin eða eru í erfiðleikum. Þetta eru treflar og sjöl sem beðið hefur verið fyrir og ætlað sem faðmlag frá söfnuðunum báðum,( Grensássöfnuði og Bústaðasöfnuði) með hverri vinavoð þá fylgir bæn. Fallegt verkefni sem að vert er að taka þátt í. Vinavoðirnar eru á fimmtudögum í Grensáskirkju frá 12-14.
Umsjónaraðili/-aðilar