Kærleikur og vinátta með Jesú í skapandi leik og list

Yfirskriftin að þessu sinni er Kærleikur og vinátta með Jesú í skapandi leik og list. Við munum kynnast lífi og starfi Jesú Krists og efla vináttuna með því að tjá kærleiksboðskapinn í gegnum leik og listir. Jafnframt munum við vinna með sjö jákvæð gildi í góðum samskiptum með því að segja Biblíusögur og skapa list sem tengjast gildunum. Með þessari vinnu viljum við efla tengsl barnanna, dýpka skilning þeirra á gildunum og styrkja sjálfsmynd þeirra. Gildin sem fjallað verður um eru: vinátta, fyrirgefning, samkennd, gleði, traust, virðing og þakklæti.

TTT - Tíu-til-tólf ára starf

TTT - starfið í Grensáskirkju er fyrir öll börn á aldrinum 10-12 ára (5.-7. bekk). Foreldrar skrá börn sín til þátttöku með því að fylla út skráningarupplýsingar, hér á heimasíðunni, eða með því að senda upplýsingarnar á netfangið solveig@kirkja.is. Það er ókeypis að taka þátt. Börnin mæta sjálf í starfið í safnaðarheimili Grensáskirkju en gengið er inn um aðaldyr kirkjunnar. 

Hvenær?

Á þriðjudögum kl. 16:30-18:00 og einn sunnudag kl. 11:00. 


Dagsetningar


Þriðjudaginn  13. október
Þriðjudaginn  20. október
Þriðjudaginn 27. október
Þriðjudaginn 3. nóvember
Þriðjudaginn 10. nóvember
Þriðjudaginn 17. nóvember


Sunnudaginn 22. nóvember kl. 11.00 – 12.30.