TTT - Tíu til tólf ára starf í Grensáskirkju
TTT - Tíu til tólf ára starfið (TTT) í Grensáskirkju er fyrir öll börn á aldrinum 10-12 ára (5.-7. bekkur). Vorámskeiðið hófst þriðjudaginn 3. febrúar kl. 16:30-18:00 og verður vikulega í sex skipti til og með 10. mars. Námskeiðið endar á fjölskyldumessu í Grensáskirkju sunnudaginn 15. mars kl. 11.00.
Yfirskriftin er Kærleikur og vinátta með Jesú í skapandi leik og list. Við munum kynnast lífi og starfi Jesú Krists og efla vináttuna með því að tjá kærleiksboðskapinn í gegnum leik og listir. Jafnframt munum við vinna með sjö jákvæð gildi í góðum samskiptum með því að segja Biblíusögur og skapa list sem tengjast gildunum. Með þessari vinnu viljum við efla tengsl barnanna, dýpka skilning þeirra á gildunum og styrkja sjálfsmynd þeirra. Gildin sem fjallað verður um eru: vinátta, fyrirgefning, samkennd, gleði, traust, virðing og þakklæti.