Sjö skipti í kirkjunni

TTT-starfið, fyrir börn á aldrinum 10-12 ára, er á þriðjudögum kl. 16:10-17:10.

Boðið verður upp á sjö stundir, sex þriðjudaga og lokahóf í fjölskyldumessu í Grensáskirkju sunnudaginn 3. mars kl. 11.

Dagsetningar
Þriðjudaginn 23. janúar 
Þriðjudaginn 30. janúar 
Þriðjudaginn 6. febrúar 
Þriðjudaginn 13. febrúar 
Þriðjudaginn 20. febrúar
Þriðjudaginn 27. febrúar 
Sunnudaginn 3. mars - Uppskeruhátið í fjölskyldumessu

Skráning og nánari upplýsingar eru á heimasíðu kirkjunnar, undir flipanum Æskulýðsstarf.

Við hlökkum til að eiga skapandi og skemmtilegra stundir saman í kirkjunni okkar. Verið hjartanlega velkomin í barnastarfið í Grensáskirkju. 

Umsjón með starfinu hafa Daníel Ágúst Gautason æskulýðsprestur, daniel@kirkja.is, og leiðtogar.

Tortillu-pizza samvera

Það er svo gaman að elda og borða saman, svo það er nákvæmlega hvað við ætlum að gera næst í TTT-starfinu. Við ætlum að útbúa okkar eigin tortillu-pizzur og hafa gaman.