Vinir í bata eru samtök fólks sem nota 12 sporin til að skoða líf sitt og finna leiðir til að lifa jákvæðara og innihaldsríkara lífi óháð fíkn. Starfið er fyrir alla sem vilja bæta líf sitt, aldur eða staða skiptir ekki máli.  Unnið á jafningjagrundvelli. Þau sem eru búin að fara í gegnum sporin einu sinni eða oftar hjálpa hinum sem styttra eru komin og styðja þau í batanum. 

Fundir eru einu sinni í viku, á fimmtudögum kl. 19.15-21.15 í Grensáskirkju. Það kostar ekkert að vera með. Starf vetrarins byrjar 7. september. Fyrstu fundirnir eru opnir svo fólk geti kynnst því hvernig starfið fer fram. 

Við notum vinnubókina 12 sporin - andlegt ferðalag,  sem fæst í Kirkjuhúsinu og stílabók til að vinna verkefnin.  
Þú ert velkomin(n). 

Nánari upplýsingar á viniribata.is, hjá Sólrúnu solong@simnet.is og hjá sr. Maríu í Grensáskirkju. 

Á undan sporafundum er boðið upp á iðkun Kyrrðarbænar. Bænastundirnar eru kl. 18.15 í Grensáskirkju og eru öllum opnar, óháð þátttöku í 12 spora starfinu.