Hátíðarhelgihald á Mörkinni
Guðsþjónusta fer fram á Mörkinni, hjúkrunarheimili, Suðurlandsbraut, á hvítasunnudag 28. maí nk. kl. 16. Kirkjukór Grensáskirkju syngur undir stjórn Ástu Haraldsdóttur organista. Séra Þorvaldur Víðisson prédikar og þjónar fyrir altari. Mörkin er í Grensássókn og hefur það verið fastur liður að prestar, organistar og tónlistarfólk annast þar um helgihald og þjónustu, sérstaklega í kringum stórhátíðir.
Við þökkum farsælt og gott samstarf við heimilisprest og djákna í gegnum árin, stjórn og starfsfólk Grundarheimilanna og hlökkum til áframhaldandi góðs samstarfs á komandi árum.
Sjáumst á Mörkinni á Hvítasunnudag kl. 16.
![](/sites/default/files/styles/squared_small/public/2023-05/morkin_hjukrunarheimili_logo_mai_2023.png.jpg?itok=J8ph1_kO)