Sunnudagur í föstuinngangi - Guðsþjónusta kl. 11

Senn gengur fastan í garð.  Bolludagur, sprengidagur og öskudagur marka upphaf föstunnar.  Börnin bregða á leik og klæða sig upp en í kirkjunni er sjónum beint að þjáningu Krists.  Vers vikunnar að þessu sinni er fengið úr Lúkasarguðspjalli þar sem segir: „Nú förum við upp til Jerúsalem og mun allt það koma fram sem spámennirnir hafa skrifað um Mannssoninn.“ (Lúk 18.31)

Á sunnudegi í föstuinngangi komum við saman í Grensáskirkju kl. 11 og hlýðum á textann úr Markúsarguðspjalli er Jesús undirbýr lærisveina sína fyrir það sem koma skal.  Ásta Haraldsdóttir kantor kirkjunnar og kór Grensáskirkju leiða söfnuðinn í söng.  Sr. Sigríður Kristín þjónar fyrir altari ásamt messuþjónum.  

Heitt er á könnunni og sætur biti fyrir og eftir stundina.   

Verið öll hjartanlega velkomin í Grensáskirkju.  

 

Hallgrímur Pétursson orti:

Krossferli' að fylgja þínum
fýsir mig, Jesú kær,
væg þú veikleika mínum
þó verði' eg álengdar fjær.
Þá trú og þol vill þrotna,
þrengir að neyðin vönd,
reis þú við reyrinn brotna
og rétt mér þína hönd.