Spilakvöld í æskulýðsstarfinu í Grensáskirkju

Spil! Spil! Spil! Það verður nóg af spilum í boði í æskulýðsstarfinu á þriðjudaginn. Jungle speed, Pictionary, Tvenna, Gettu hver?, gamli góði spilastokkurinn, já og margt, margt fleira. Hlökkum til að spila með ykkur.

Athugið að þetta er síðasti dagurinn til þess að skila leyfisbréfunum fyrir Febrúarmót.

Æskulýðsstarfið er í Grensáskirkju þriðjudaga kl. 20-21.30. Allir unglingar í 8.-10. bekk eru velkomnir.

Umsjón með starfinu hafa Hilda, Viktoría og Sólveig.