Skólahljómsveit Austurbæjar og ferming: Guðsþjónusta í Grensáskirkju
Skólahljómsveit Austurbæjar og ferming: Guðsþjónusta í Grensáskirkju
Nóg verður um að vera í guðsþjónustu næsta sunnudags í Grensáskirkju kl. 11.
C-sveit skólahljómsveitar mætir á svæðið og spilar þrjú tónverk fyrir söfnuðinn. Stjórnandinn Snorri Heimisson mun leiða sveitina.
Þá verður drengur fermdur.
Sr. Daníel Ágúst leiðir stundina ásamt Ástu Haraldsdóttur, kantor, félögum úr kirkjukór Grensáskirkju og messuþjónum.
Verum velkomin í guðshús alla sunnudagsmorgna.
Umsjónaraðili/-aðilar