Guðsþjónusta í Grensáskirkju kl. 11

Verið öll hjartanlega velkomin!

 

Skólahljómsveit Austurbæjar í Grensáskirkju

Við fáum góða gesti til okkar á sunnudaginn kemur því Skólahljómsveit Austurbæjar mun líta við og gleðja viðstadda. Stjórnandi hljómsveitarinnar er Snorri Heimisson.  Kór kirkjunnar mun leiða söfnuðinn í söng undir stjórn Ástu Haraldsdóttur organista.  Messuþjónar lesa ritningu og bæn og sr. Sigríður Kristín þjónar fyrir altari.