Orgelið afhent

Sunnudaginn 16. ágúst nk. kl. 12:10 að lokinni messu í Grensáskirkju verður farið í hópferð að Hallgrímskirkju í Saurbæ á Hvalfjarðarströnd. Þar munum við taka þátt í messu kl. 14 ásamt heimafólki. 

Tilefni heimsóknarinnar er að fylgja úr hlaði gjöf sem Grensássöfnuður hefur afhent söfnuðinum í Hallgrímskirkju í Saurbæ. Um er að ræða orgel sem Grensássókn átti og notaði til margra ára í helgihaldi sínu. Þegar nýtt orgel í Grensáskirkju var tekið í notkun var umrætt orgel varðveitt í safnaðarheimili Grensáskirkju og hefur staðið þar síðan. Um er að ræða gott hljóðfæri sem orgelnemar hafa notað til æfinga. 

Það er fagnaðarefni að orgelið hefur nú fengið nýtt hlutverk og verið komið upp á fallegum stað í Hallgrímskirkju í Saurbæ. 

Allir eru hjartanlega velkomnir til þátttöku í ferðinni og helgihaldinu með okkur bæði í Grensáskirkju kl. 11 og síðan í Hallgrímskirkju í Saurbæ kl. 14. 

Fyrirhugað er að bjóða upp á rútuferð til og frá Grensáskirkju, gegn vægu gjaldi. Þeir sem vilja nýta sér þann kost vinsamlegast látið vita í síma 528-8510 eða á netfangið thorvaldur@kirkja.is

Verið hjartanlega velkomin til þátttöku í helgihaldi Grensáskirkju og safnaðarferð. 

Rúta fyrir þá sem óska