Pappaboltaorrusta í æskulýðsstarfinu
Pappaboltaorrusta í æskulýðsstarfinu
Við ætlum í pappaboltaorrustu á þriðjudaginn í æskulýðsstarfinu. Pappaboltar munu fljúga og við verðum að gera okkar besta til að forðast þá. Svolítill hasar til að hrista vikuna upp!
Við minnum á að hægt er að koma með gjafir fyrir verkefnið Jól í skókassa.
Æskulýðsstarfið er í Grensáskirkju þriðjudaga kl. 20-21.30. Allir unglingar í 8.-10. bekk eru velkomnir.
Umsjón með starfinu hafa Danni, Hilda og Viktoría.
Umsjónaraðili/-aðilar