Opin kirkja í páskafríinu

Mánudaginn 25. mars og þriðjudaginn 26. mars bjóðum við upp á Opna kirkju í Grensáskirkju. Hægt að koma við í kirkjunni frá klukkan 14 til 18 til að spila, föndra, leika og snúa lukkuhjóli. Opna kirkjan er hugsuð fyrir alla aldurshópa sem vilja eiga góða stund saman í dymbilvikunni. Börn og fjölskyldur í páskafríi eru sérstaklega velkomin.