Tímabil sköpunarverksins og Dagur kærleiksþjónustunnar

Frá 1. september til og með 4. október stendur yfir Tímabil sköpunarverksins sem kirkjur á alþjóðavísu eru þátttakendur í, þar á meðal þjóðkirkja Íslands. Þá hefur 13. sunnudagur eftir þrenningarhátíð verið útnefndur Dagur diakóníunnar eða kærleiksþjónustunnar í kirkjunni okkar. Þetta tvennt verður til umfjöllunar í 11-messunni í Grensáskirkju sunnudaginn 3. september. 

Sr. María G. Ágústsdóttir prédikar og þjónar ásamt messuhópi, Ástu Haraldsdóttur kantor og Kirkjukór Grensáskirkju. Heitt á könnunni fyrir og eftir messu. Verum öll hjartanlega velkomin.