Í guðsþjónustu í Grensáskirkju sunnudaginn 20. ágúst kl. 11 bjóðum við fermingarfjölskyldur vorsins 2024 sérstaklega velkomnar. Sr. María, sr. Eva Björk og sr. Þorvaldur þjóna ásamt Danna djákna og messuþjónum, Ástu organista og Kirkjukór Grensáskirkju. Stuttur fundur um fermingarstörfin eftir stundina, kaffi, djús og sætur biti frammi. Verum velkomin.