Líkami Krists, lífsins brauð

Messa í Grensáskirkju 10. mars kl. 11:00. Í Guðspjalli dagsins spyrja Gyðingar „Hvernig getur þessi maður gefið okkur líkama
 sinn að eta?“. Því ætlum við að velta fyrir okkur og vonandi svara. Kirkjukór Grensáskirkju leiðir almennan messusöng og Ásta Haraldsdóttir organisti spilar og sr. Eva Björk Valdimarsdóttir þjónar ásamt messuþjónum. Verið hjartanlega velkomin.