Leigubílstjórinn í æskulýðsstarfinu

Næsta þriðjudag í æskulýðsstarfinu ætlum við að hitta leigubílstjórann. Leigubílstjórinn er alveg magnaður karakter. Hann getur keyrt okkur á alla heimsins staði (og handanheimsins). Gallinn er sá að hann er frekar lélegur með nöfn og man aldrei hvað þessir staðir eru kallaðir. Við reynum okkar besta að hjálpa honum!

Æskulýðsstarfið er í Grensáskirkju þriðjudaga kl. 20-21.30. Allir unglingar í 8.-10. bekk eru velkomnir.

Umsjón með starfinu hafa Danni, Hilda og Viktoría.

Umsjónaraðili/-aðilar