Kyrrðarbænastundir kl. 18.15 á fimmtudögum

Á fimmtudögum kl. 18.15 verður boðið til Kyrrðarbænastunda í Grensáskirkju. Umsjón hafa Ingunn Björnsdóttir og sr. Bára Friðriksdóttir frá Kyrrðarbænasamtökunum á Íslandi ásamt sr. Maríu G. Ágústsdóttur, presti í Fossvogsprestakalli. 

Um Kyrrðarbæn úr bæklingi frá Kyrrðarbænasamtökunum:

Kyrrðarbænin felur í sér samband við Guð og er um leið aðferð til að rækta það samband. Með þessari bænaaðferð færumst við frá samtali við Guð til samfélags við hann.