Á fimmtudögum eru Kyrrðarbænastundir í kapellu Grensáskirkju í umsjá sr. Báru og Ingu frá Kyrrðarbænasamtökunum ásamt sr. Maríu. Á undan og eftir stundinni er notalegt spjall og stutt fræðsla um Kyrrðarbæn, Biblíulega íhugun og fleira sem tengist starfi Kyrrðarbænasamtakanna, til dæmis Fagnaðarbæn. 

Við erum öll velkomin á þessar stundir.